| elinmagg.blogdrive.com |
|
|
Blogg
*Elísa og Hlynur* Jóhanna frænka *Kristín og Jóhanna* *Katrín* *Steinunn Frídur* *Fyndid blogg;)* *Slúðrið hennar Jóhönnu* Tónlist *Coldplay* *Eva Cassidy* *Evanescence* *Franz Ferdinand* *Gavin Degraw* *Green Day* *Jeff Buckley* *Katie Melua* *Queen* *Maroon 5* *Michael Bublé* *Norah Jones* *Nickelback* *Phantom Planet* *Robbie Williams* *Sálin* *Scissor Sisters* *The Killers* Eitthvad dót *The O.C.* *Tónlist.is* *Textar á netinu* *Idol* *Idol í Noregi* *Síminn.is* *Kvennakór HÍ*NÝTT!! My Guestbook |
HÆTT!! ... ef þið skylduð ekki vera búin að komast að því nú þegar þar sem ég hef ekki skrifað í næstum tvo mánuði! þá tilkynni ég hérmeð að ég er hætt að blogga
ástand! uss er það nú ástand á heimilinu! við erum sjónvarpslausar!:( sjónvarpið okkar ákvað nefnilega allt í einu að það langar líka að hafa vetur hjá sér, hehe ;) þannig að núna sjáum við ekkert nema blindbyl á öllum stöðvum! og þetta er búið að vera svona örugglega síðan á fimmtudaginn... uhuu, og akkurat núna er ég að missa af Heroes!:( hmm, þetta er að öllum líkindum loftnetið... sem þýðir að einhver verður líklega að príla upp á þak á fjögurra hæða húsi og reyna að fiffa það einhvern veginn... pant ekki ég!:S og það þýðir líka að ef einhver horfir á þáttinn í kvöld verður hann að segja mér hvað gerðist svo ég geti haldið áfram að fylgjast með!:) eru þetta snilldarþættir maður!:D æfingabúðirnar hjá kórnum heppnuðust prýðilega, það var ofsalega gaman hjá okkur! og við erum líka að syngja svo æðislega skemmtileg lög, ítölsk, finnsk og þýsk og ég veit ekki hvað!:) en jæja, ætli maður hunskist ekki til að læra eitthvað... annars er maður bara svo þreyttur að maður gæti sofnað á stundinni! *geisp* þannig að ætli það verði nokkuð úr lærdómi i þetta skiptið... au revoir elskurnar:) ps. ég fíla sko My Love með Justin Timberlake, þetta lag er grúúúví, jejeje!;)
Tónlistarverðlaunin í kvöld, jeii Ég er að fara á Íslensku tónlistarverðlaunin í kvöld! Mjög kúl! æfingabúðir um helgina hjá kórnum, það verður örugglega skemmtilegt! Í Hlíðardalsskóla (einhversstaðar á Krísuvíkurleiðinni... er ekki alveg með staðsetninguna á tæru það var hittingur hjá húsóliðinu á laugardaginn, heima hjá henni Svövu okkar sem bauð upp á dýrindis máltíð, mexíkóska tómatsúpu, namm! það er MIKIÐ að gera í skólanum núna, 2-3 stór verkefni... þá verður maður víst að vera duglegur, dugar ekkert annað ef lærdómurinn á ekki að fara í einhverja vitleysu! eeen það er ekki alveg að ganga hjá mér... úps!:S HM í handbolta... jahh, á maður ekki að hafa sem fæst orð um það? eða þ.e.a.s. leikinn í gær... ég verð samt að segja að íslenska liðið er búið að vera að standa sig þrusuvel þótt við höfum tapað í gær... leiðinlegt að þeir hafi ekki komist í úrslit en við erum allavega með 5-8. besta handboltalandslið í heimi, spáið í það!!! (eiginlega eru þessir broskallar hálf-púkó, var bara að prófa þá!;) ps. Gleymdi að segja frá mjög mikilvægum fréttum, en á laugardagskvöldið á meðan á partíinu stóð (húsó) þá eignaðist Erna húsódama litla stúlku, (mjög hentug tímasetning hjá henni;)) hún var 13 merkur og vil ég óska henni og kærastanum innilega til hamingju og að þeim gangi svaka vel með litlu dúlluna! hmhm... þið sem voruð að væla í mér að blogga oftar, hvernig væri þá að þið væruð virkari í að kommenta?;) ... spurning...
:D Ísland vann Frakka með 8 marka mun!:D veiveivei!!!:D man ekki eftir að hafa nokkurn tíma horft á eins skemmtilegan leik, þetta var ótrúlegt!!:)
eruði að grínast... með úrslitin í forkeppninni í gær?!? ég á bara ekki orð, þessi lög sem komust áfram voru ekki bestu lögin sem tóku þátt, og fyrir utan að lagið sem Bríet Sunna söng var bara ekki gott, söng hún líka bara illa! Og lagið með þessum Sjonna var bara FÁRÁNLEGT! Sorrí ef ég er að móðga einhvern... ég hefði mest af öllu viljað sjá Heiðu komast áfram, það lag fannst mér gott og fallegt á sviðinu... ég held ég sé bara alveg hætt að taka mark á símakosningum!
Nr. 2 á sama degi!:O Þið haldið eflaust að eitthvað meiriháttar hafi komið fyrir mig! Tvö blogg á sama degi, vá!;) Ég má bara til að deila einni sögu með ykkur... kennarinn minn er skrýtin skrúfa!;) sagði okkur frá því í dag að hún hefði lent í vægast sagt skrautlegu atviki þegar hún fór í leikhús núna um daginn... fór að sjá Patrek 1,5 og fannst stykkið meiriháttar! Nema hvað, hún og félagar hennar eru að tala við leikarana að lokinni sýningu og það kemur til tals að einn af þessum leikurum sé uuu... vinur frænda hennar ef ég man rétt... og hún bara "jájá... og þú heitir?" segir hún við Rúnar Frey sem á að vera vinurinn sem um ræðir! Allir verða alveg orðlausir! Svo segir hann "ég heiti Rúnar" ... já, ókei!;) frekar vandræðalegt... og Rúnar greyið hefur líklega aldrei lent í þessu áður, að íslendingur viti ekki hver hann er!;) hehe, bara fyndið!;) Ætlaði að vera geðveikt dugleg og þvo núna áðan.... hmhm, ekki veitir af, óhreina taus karfan er full! Síðan þegar ég er komin niður stigann og ætla að kveikja ljósið niðrí kjallara þar sem þvottahúsið er... neinei, ljósið kviknar ekki! Svo ég prófaði að kveikja ljósið í stigaganginum en það kviknaði ekki heldur! loks harkaði af mér og fór niður í dimman kjallarann skjálfandi á beinum (vá, hugrökk!), enn ekkert ljós, og ekki inni í þvottahúsi... ég hugsaði að það væri kannski rafmagnslaust, þorði bara engan veginn að vera þarna niðri í dimmunni þannig að ég fór bara upp og lét þvottinn eiga sig... því ef rafmagnið væri nú í ólagi er náttla ekkert hægt að þvo! þegar ég síðan kom upp í íbúð var ekkert að rafmagninu!: / dularfullt, eða hvað?
mmm, mig langar í mandarínu!:þ finnst þær alltaf jafn góðar, held ég gæti borðað alveg 10 á dag!!:D svo eru þær svo jóló! :) sjæz! síðasta skólavikan runnin upp... ótrúlegt hvað þetta er búið að vera fljótt að líða! og nú er ískyggilega stutt í prófin... :S ég fer í fjögur próf í desember, fyrsta er 13. og síðan er síðasta 20. des... eiginlega dáldið of seint fyrir minn smekk, ekki mikill tími fyrir jólaundirbúning! reyndar eru próf í einu námskeiðinu í þessari viku, munnlega prófið er þ.a.l. búið, gott að það er afstaðið!:S og svo er próf í hljóðfræði á fimmtudaginn en þetta tvennt er kennt í sama námskeiðinu semsagt. síðan ætla ég að óska tveimur frændsystkinum mínum til hamingju með daginn: Sigfús frændi minn verður 27 ára í dag, og Jóhanna frænka mín verður 24 ára í dag! innilega til hamingju bæði tvö, vonandi eigið þið góðan dag!:*
mig langar að sjá Borat!:) það eru allir að segja að maður liggi í krampa alla myndina!:D langar sko ekki að missa af svoleiðis tækifæri!;D það stóð reyndar til að fara á hana í gær því við systurnar eigum svona tilboðsmiða í bíó, en síðan kom á daginn að miðinn gildir ekki í bíóin þar sem myndin er sýnd... frekar dáldil vonbrigði... en ég ætla samt!:) svo að við horfðum bara á Sódóma Reykjavík í staðinn!;) hehe, hafði sko ekki séð hana áður, uss get nú ekki verið þekkt fyrir það;) hehe, ekkert smá klikkuð mynd!;) mér er illt í hausnum (óþarfa upplýsingar) og ætla þ.a.l. að hundskast til að standa upp frá tölvunni!;) þó fyrr hefði verið... veriði marg blessuð og sæl, elskurnar mínar... ps. rosalega er ég annars dugleg við að blogga!:) mér finnst alveg að maður megi hrósa sjálfum sér stundum!;)
sælt veri fólkið fór í vísindaferð í gær með frönskunni (að sjálfsögðu;)). Mætti í Landsbankann við Hafnarstræti kl. 5 og þetta byrjaði á því að starfsemi bankans var kynnt fyrir okkur, best að hafa ekkert mörg orð um það neitt... og síðan vorum við bara að spjalla og svona, það var náttúrlega boðið upp á frítt áfengi og alles!;) og ekkert smá góðan pinnamat og snittur:p þetta var ferlega kósý!:) síðan ætluðum við á Óliver og fá okkur eitthvað í svanginn... en ég sá mér reyndar ekki fært að djoina þau þar, þar sem ég þurfti að ná rútunni á Selfoss, þannig að kvöldið endaði bara rólega, horfði á X-Factor og eikkað!;) bara fyndið!:D
ég er að fara að fá almennilegt rúm, mmmm;) þ.e.a.s. á Baldursgötuna... og mikið var!:O ...sef sko enn sem komið er bara á einhverjum sófapullum og dýnu oná... reyndar ekki eins slæmt og það hljómar en... það er náttúrlega ekkert eins þægilegt og að sofa í venjulegu rúmi! klapp fyrir því!:D (sko, að ég sé að fara að fá RÚM;)
núna er Sálin & Gospel diskurinn kominn út!:D ekki spurning um að hann er á óskalistanum fyrir jólin!:) lögin af diskinum farin að hljóma í útvarpinu... og ég fæ sko ennþá fiðring þegar ég heyri lögin og hugsa um að ég hafi í alvörunni verið þarna, úff!:) alveg magnað!:)
man nú ekki eftir neinu meiru sem er fréttnæmt... hehe, ekki það að þetta blogg sé eitthvað fréttnæmt!;) en allavega, þangað til næst...
in the dark vá klukkan er bara hálf fimm og það er orðið dimmt!:O já, svona er að búa á Íslandi! hehe, annars hef ég nú bara ekkert meira að segja!;) nema kannski smá slúður (úr Fréttablaðinu í dag): Britney Spears er farin að sjást með nýjum kærasta, sá heitir víst Mario Lopez... og það eru bara 2 vikur síðan hún og Federline hættu saman og hún bara sig mjög illa! uss, maður veit aldrei með þessi "celeb";) og eins er hann Orlando Bloom hjartaknúsari sagður vera yfir sig ástfanginn af henni Kirsten Dunst og þau hafa sést saman, en hann og leikkonan Kate Bosworth slitu einmitt samvistum fyrr á árinu! Bara svona smá fréttir af fræga fólkinu fyrir slúðurþyrsta... en líklega eru samt flestir búnir að sjá þetta í Fréttablaðinu, en skítt með það!;) maður verður nú að hafa eitthvað að skrifa!;) síðan er BINGÓIÐ í kvöld!:o) sæl að sinni!
Ég er komin í jólaskap!:) Ég ætlaði varla að trúa mínum eigi augum þegar ég leit út um gluggann í gærmorgun! Allt á kafi í snjó!! þessi tími ársins er svo yndislegur, þegar allt er á kafi í snjó og maður þarf að dúða sig, jólin eru á næsta leiti... maður er byrjaður að hlusta á jólalög og er farið að langa að baka smákökur og sitja við arininn með teppi og heitt kakó mmm;) ooo, þetta er allt svo jólalegt!:) reyndar skil ég alveg að sumum finnist ekkert æði að þurfa að byrja morguninn á því að skafa og koma bílnum í ökufært ástand, en þar sem ég hef enga þörf á bíl finnst mér þetta alveg í fínu lagi bara, híhí!;) bara eitt sem skyggir á og það eru jólaprófin... :/ ekki beint skemmtileg tilhugsun að þurfa að eyða næstum allri aðventunni í prófalestur!:( Já, svo stefnum við krakkarnir í frönsku á Frakklandsferð í vor, jibbí!:) það verður örugglega svaka stuð! Núna erum við alveg á fullu að fjármagna ferðina, vorum með sölu í Kolaportinu sem hefði reyndar getað gengið betur, og svo stefnum við á BINGÓ núna á miðvikudaginn, glæsilegir vinningar í boði! Endilega koma þeir sem hafa tíma og áhuga!:) og styrkið gott málefni í leiðinni!;):p Mikið er ég ánægð með að Mýrin skildi hreppa verðlaun á Eddu-hátíðinni í gær!:) reyndar sá maður það alveg fyrir en myndin og allir sem komu að henni eiga þetta svo sannarlega skilið, enda er þetta snilldar-mynd! Og þið sem eigið eftir að sjá hana, ég mæli með því að þið drífið ykkur það fara að verða síðustu förvöð!:o mikið finnst mér annars Eddan leiðinlegt sjónvarpsefni, það eina sem dró mig að skjánum var forvitnin um hverjir fengju verðlaun!
ooh, Believe með Josh Groban, aðal lagið í Polar Express... þarf maður að segja eitthað meira?:) þetta er eitt það flottasta jólalag sem samið hefur verið, allavega á síðustu árum!:) þetta lag verð ég bara að eignast!:) Hmm... ég er reyndar farin að efast um að einhver nenni lengur að leggja leið sína á þetta blogg mitt, og það er örugglega sökum ótíðra bloggskrifa... þannig að ég held að ég hafi þetta bara nóg í þetta skiptið... og ef svo ólíklega vill til að e-r kíkji hingað samt sem áður, má sá hinn sami alveg skilja e-ð eftir sig;) en ég er farin, bæjó
|